Fasteignamarkaðurinn ehf: s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega og vandaða 3ja herbergja 90,6 fermetra íbúð á 3. hæð með yfirbyggðum suðvestursvölum í mjög nýlegu og vönduðu fjölbýlishúsi við Hallgerðargötu í Reykjavík. Aðgangur að bílastæði í bílakjallara fyrir 8.000 krónur á mánuði.
Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2026 er 92.050.000.-
Eignin er sem fyrr segir mjög vönduð:
- Aukin lofthæð er í íbúðinni og gólfsíðir gluggar
- Vönduð loftræsting er í öllum rýmum
- Kvartsteinn er á borðum innréttinga
- Gólfhitalagnir í öllum rýmum
- Yfirbyggðar og opnanlegar vestursvalir með frábæru útsýni út á sjóinn, að Hörpu og miðborginni
- Vandaðar innréttingar úr hnotu
- Innfelld lýsing í loftumLýsing eignar:Forstofa / hol, parketlagt og með innbyggðum fataskápum í vegg.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt með gólfsíðum gluggum og miklum innbyggðum fataskápum í vegg.
Barnaherbergi, stórt, parketlagt og með innbyggðum fataskápum í vegg.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting með kvartsteini á borði, veggskápar, handklæðaofn, vegghengt wc og flísalögð sturta með unidrain niðurfalli.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með fallegri innréttingu úr hnotu með kvartsteini á borði, gleri á milli skápa, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp með frysti.
Stofa, parketlögð og björt með gólfsíðum gluggum og útgengi á yfirbyggðar opnanlegar svalir til vesturs með viðarklæddu gólfi og frábæru útsýni út á sjóinn, að Hörpu og miðborginni.
Í kjallara hússins eru:Sérgeymsla, 9,2 fermetrar að stærð.
Aðgengi að bílastæði í bílakjallara fyrir kr. 8.000 á mánuði.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.Húsið að utan er klætt með áli og gluggar eru ál/tré þannig að húsið er viðhaldslétt auk þess að vera nýlegt og líta vel út.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, miðsvæðis, þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir, þjónustu og út á aðalbraut.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]