Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu eina glæsilegustu "Penthouseíbúð" landsins. Íbúðin, sem er 229,0 fermetrar að stærð er ein á efstu hæð hússins og gengur lyftan beint inn í íbúðina. Tvennar þaksvalir eru útaf íbúðinni og er heitur pottur á öðrum þeirra, en auk þess eru tvennar svalir á íbúðinni til viðbótar. Tvö baðherbergi, tvö eldhús, tvö barnaherbergi og hjónasvíta auk glæsilegra samliggjandi stofa með arni og útgengi á 53,0 fermetra þaksvalir til norðurs, vesturs og suðurs auk tvennra um 8,0 fermetra suðursvala um rennihurðir. Verulega aukin lofthæð er í íbúðinni, falleg lýsing í loftum og gólfsíðir gluggar að hluta.
- Tvö sér bílastæði í bílakjallara fylgja íbúðinni og er þegar búið að setja upp rafhleðslustöð fyrir bíl í öðru stæðinu.
- Eignin var sérinnréttuð að óskum eiganda í upphafi og sá arkitekt hússins, Björn Skaptason um hönnun íbúðarinnar.
- Allar innréttingar eru smérsmíðaðar af Hegg úr hnotu og svartbæsaðri eik. Mikið er af föstum innréttingum, skenkjum og skápum, m.e. í borðstofu og setustofu og virkilega fallegar bókahillur fastar á vegg í sjónvarpsrými innaf setustofu
- Tæki í eldhúsi eru vönduð frá Miele og er m.a. innbyggður háfur í helluborði og tveir ofnar í innréttingu
- Tæki í baðherbergjum eru af vandaðri gerð og innfelld í veggi
- Gólefefni eru frá Epson, gegnheilt parket og marmaraflísar 90x90 cm að stærð
- Marmari á borðum og steinn í arni eru frá S.Helgasyni
- Öll lýsing í eigninni var hönnuð af Lumex og er fjöldi lofta tekinn niður og bæði með innbyggðri og óbeinni lýsingu
- Rafmagn er í öllum rúllugardínum íbúðarinnar
- Free@home snjallstýrikerfi í íbúðinni stýrir gólfhita, lýsingu o.fl.
Lýsing eignar:Hol, sem komið er í beint úr lyftu er flísalagt og með góðum innbyggðum fataskápum.
Eldhús, er opið við stofur að hluta, flísalagt. Virkilega fallegar og vandaðar sérsmíðaðar innréttingar úr hnotu og svartbæsaðri eik með innbyggðum tvöföldum ísskáp með frystum, tveimur ofnum og innbyggðri uppþvottavél. Eyja með helluborði með innbyggðum háfi. Marmari er á borðum innréttingar og á milli skápa og eyja er öll klædd marmara.
Innra eldhús, með glugga, flísalagt og með svartbæsaðri eiknarinnréttingu með marmara á borði, innbyggðri uppþvottavél og tveimur innbyggðum vínkælum.
Borðstofa, opin við hol og eldhús, er flísalögð og með mjög miklum gólfsíðum gluggum til norðurs og fallegu útsýni.
Geymsla, er innaf borðstofu, flísalögð og með glugga. Úr geymslu er gengið í stigahús.
Setustofa, mjög rúmgóð, björt og flísalögð með gólfsíðum gluggum til suðurs og vesturs. Stór og mikill gasarinn úr marmara og með marmarklæddum veggjum í kring. Úr setustofu er útgengi um rennihurð á 53 fermetra þaksvalir til norðurs, vesturs og suðurs með steyptum veggjum og glerhandriðum. Auk þess er útgengi á tvennar aðrar um 8,0 fermetra suðursvalir út setustofu um rennihurðir.
Bóka- og sjónvarpsstofa, innaf setustofu er flísalögð og rúmgóð með miklum föstum sérsmíðuðum hillum úr hnotu.
Gangur, parketlagður og með mjög fallegum viðarklæddum vegg.
Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott.
Þvottaherbergi, flísalagt gólf og góð innrétting með miklu skápaplássi, stæðum fyrir vélar í vinnuhæð, vinnuborði og vaski.
Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott með innbyggðum fataskápum.
Baðherbergi I, stórt og með gluggum, flísalagt gólf og veggir, innrétting með marmara á borði, flísalögð stór sturta, vegghengt wc og handklæðaofn. Úr baðherbergi er útgengi á hellulagðar um 40,0 fermetra þaksvalir til norðurs, austurs og suðurs með skjólveggjum og heitum potti.
Hjónasvíta samanstendur af hjónaherbergi, baðherbergi og fataherbergi:Hjónaherbergi, parketlagt og stórt.
Fataherbergi, parketlagt og með miklum og vönduðum sérsmíðuðum innréttingum með mikilli lýsingu í og föstum speglum á veggjum.
Baðherbergi II, rúmgott, flísalagt gólf og veggir, innrétting með tveimur vöskum, stór flísalögð sturta, vegghengt wc, handklæðaofn og vönduð tæki.
Í kjallara hússins eru:Tvö sérmerkt bílastæði, rúmgóð og vel staðsett og hefur verið sett upp rafhleðsustöð við annað þeirra.
Sameiginleg hjólageymsla með útgengi á lóð.
Húsið að utan er klætt með áli og því viðhaldslítið og sameign hússins er öll mjög vönduð og vel umgengin.
Lóðin er fullfrágengin með góðri aðkomu, fjölda bílastæða á malbikuðum bílaplönum bæði fyrir ofan hús og neðan, fallegri lýsingu, tyrfðum flötum og hellulögðum stéttum með hitalögnum undir að hluta.
Allar nánari upplýsingar og tímapantanir á skoðun eignarinnar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]