Opið hús: 21. ágúst 2025 kl. 17:00 til 17:30.Rjúpufell 36 - Vel skipulagt tveggja íbúða raðhús á tveim hæðum ásamt bílskúr á góðum stað í Breiðholti - Opið hús fimmtudaginn 21. ágúst á milli kl. 17.00 og 17.30 - Verið velkomin
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vel staðsett og vel skipulagt 272,4 fermetra 2ja íbúða raðhús á tveimur hæðum auk 23,1 fermetra bílskúrs við Rjúpufell í Reykjavík, samtals 295,5 fermetrar.
Annars vegar er um að ræða 204,3 fermetra íbúð á efri og neðri hæð og hins vegar er um að ræða 68,1 fermetra 2ja herbergja íbúð með sérinngangi af framlóð hússins.
Stærri íbúðin skiptist þannig að á efri hæð hennar eru forstofa, hol, borðstofu, þrjú barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, eldhús og stofa með útgengi á verönd. Á neðri hæð íbúðarinnar eru fjölskyldurými, stórt, gluggalaust herbergi, þvottaherbergi og geymslur.
Minni íbúðin skiptist í forstofu, gang, stofu, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi með gufubaði innaf auk þvottaaðstöðu.Lýsing stærri íbúðar:Forstofa, teppalögð og með fataskápum.
Hol, parketlagt og rúmgott og þaðan liggur góður viðarstigi niður á neðri hæð hússins.
Borðstofa, innaf holi er parketlögð.
Barnaherbergi I, teppalagt og með fataskápum.
Barnaherbergi II, dúklagt og með fataskápum.
Barnaherbergi III, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Baðherbergi, nýlega endurnýjað að hluta, flísalagt gólf og veggir, innrétting, fastur spegill, djúpir skápar á vegg með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn og flísalögð sturta með sturtugleri.
Eldhús, parketlagt og rúmgott með góðri borðaðstöðu og þakglugga yfir. Fallegar upprunalegar bæsaðar viðarinnrétingar með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi, mjög rúmgott, parketlagt.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með útgengi á skjólsæla verönd til suðurs og þaðan á lóð.
Gengið er niður á neðri hæð stærri íbúðar um góðan viðarstiga úr holi og skiptist hún þannig:Fjöldskyldurými / sjónvarpsstofa, málað gólf.
Stórt herbergi, gluggalaust, málað gólf og loftræsting.
Geymsla, málað gólf.
Þvottaherbergi, málað gólf og loftræsting.
Lýsing minni íbúðar:Forstofa, flísalögð og með fatahengi.
Gangur, flísalagður.
Herbergi, stórt, parketlagt og með gluggum til norðurs.
Stofa, parketlögð og rúmgóð með gluggum til norðurs.
Eldhús, flísalagt og með hvítum + beykiinnréttingum og lítilli borðaðstöðu.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir að hluta, innrétting, fastur spegill, flísalögð sturta með sturtugleri, tengi fyrir þvottavél og saunaklefi.
Bílskúr er með rafmagni, hita og rennandi vatni. Mótor er á bílskúrshurð.
Húsið að utan virðist vera í nokkuð góðu ásatandi. Þakjárn er nýlega endurnýjað og þakkantur lítur vel út. Verið er að múrviðgera austurgafl raðhúsalengjunnar og til stendur að mála vesturgafl hennar.
Drenlagnir sunnan við raðhúsalengjuna eru nýlegar.
Staðsetning eignarinnar er góð á grónum og rólegum stað við Rjúpufell í Breiðholti þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir, þjónustu o.fl.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]