Lækjargata 34B, 220 Hafnarfjörður
78.500.000 Kr.
Atvinnuhús/ Verslunarhúsnæði
1 herb.
148 m2
78.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1990
Brunabótamat
76.430.000
Fasteignamat
38.350.000

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega gott og afar vel staðsett 148,9 fermetra verslunar-, skrifstofu- og lagerhúsnæði í nýlegu húsi á frábærum stað við Lækjargötu 34B í Hafnarfirði auk tveggja sér bílastæða í bílageymslu sem innangengt er í úr lagerrými húsnæðisins. 
Eignarhlutanum fylgir hlutdeild í sameiginlegri 16,4 fermetra sorpgeymslu á 1. hæð í stigahúsi A.

Fullfrágengin og malbikuð lóð með fjölda bílastæða.  Loftræstikerfi er í húsnæðinu. Tölvuskápur fylgir. Miklar og góðar raf- og tölvulagnir eru í eignarhlutanum. Eignin er laus til afhendingar nú þegar.

Yfirstandandi eru gagngerar utanhússviðgerðir á húsinu og er áætlað að þeim ljúki á haustmánuðum, en þessar framkvæmdir verða að fullu greiddar af seljanda. 
M.a. verður skipt um allan gluggafront þessa eignarhluta auk múrviðgerða á húsi, endurnýjun þaks, glers, glugga o.fl. 


Lýsing eignar:
Innveggir í húsnæðinu eru allir léttir þar sem jarðhæð hússins eru borin uppi af súlum og því er mögulegt að breyta öllu innra skipulagi eignarhlutans eftir eigin höfði.


Verslunarrými, flísalagt og bjart með stórum gólfsíðum gluggum út að bílaplani og föstum innréttingum. Loft eru tekin niður, lýsing innbyggð og loftræsting. 
Opið skrifstofurými, innaf verslun, parketlagt og með föstum skápum. 
Fundarherbergi, stórt, parketlagt og með eldhúsinnréttingu með vaski.
Eldhús, parketlagt og með hvítri innréttingu með vaski. Góð borðaðstaða.
Lager, sem innangengt er í úr verslunarrými er rúmgóður, lakkað gólf og um 3,5 metra lofthæð. Úr lagerrými er tvöföld hurð inn í bílageymslu þar sem eignarhlutanum fylgja 2 sérbílastæði upp við inngang í rýmið.
Geymsla / þvottaherbergi, innaf lager með vinnuborði og vaski, lakkað gólf.
Salerni, flísalagt í gólf og panelklæddir veggir, vaskskápar og stórir ræstiskápar með vaski.
Geymsluloft er yfir snyrtingu og eldhúsi.

Tvö sér bílastæði fylgja í lokaðri bílageymslu og er innangengt í bílageymsluna úr lagerrými.
Þvottastæði er í bílageymslu.

Yfirstandandi eru mjög umfangsmiklar utanhússviðgerðir og eru verklok áætluð í október 2025.  Seljandi mun að fullu greiða kostnað eignarhlutans vegna þessara framkvæmda.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á fallegum og áberandi stað við lækinn í Hafnarfirði.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.