Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallegt og mikið endurnýjað rúmlega 400 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum, með 2ja-3ja herbergja aukaíbúð með sérinngangi á jarðhæð hússins, á stórri eignarlóð með sjávarsýn á norðanverðu Arnarnesi.Eignin skiptist þannig:Aðalíbúð hússins skiptist í forstofu, hol, herbergi og innbyggðan bílskúr á jarðhæð
Á efri hæð eru stigapallur, 3 stórar samliggjandi stofur, sjónvarpsstofa, stórt eldhús, tvö baðherbergi, þvottaherbergi og þrjú svefnherbergi.
Aukaíbúð á jarðhæð sem er 2ja - 3ja herbergja, bæði með sérinngangi og líka innangengt frá aðalíbúð skiptist í forstofu, hol, baðherbergi, stofu, eldhús og svefnherbergi.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað hið innra á sl árum, m.a. öll baðherbergi, bæði eldhús, innihurðir, gólfefni að hluta o.fl.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]