-----Opið hús á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf., Óðinsgötu 4, til að fá verðlista, teikningar og nánari sölugögn eða sendið fyrirspurnir á fastmark@fastmark.is og fáið allar upplýsingar í tölvupósti-----
Kirkjusandur – Hallgerðargata - Stuðlaborg
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu afar vandaðar 2ja til 5 herbergja lúxusíbúðir á einstökum útsýnisstað í þessu glæsilega húsi "STUÐLABORG" við Hallgerðargötu 7 við Kirkjusand í Reykjavík, steinsnar frá miðborg Reykjavíkur og í mikilli nálægð við Laugardalinn.
Um er að ræða 93,2 fermetra (þar af 9,7 fm geymsla) 3ja herbergja íbúð á 4. hæð með vestur svölum sem skiptist í: Anddyri, baðherbergi m/tengi f. þvottavél, eldhús, stofu, barnaherbergi og hjónaherbergi.
Bílastæði í vönduðu bílastæðahúsi fylgir til afnota með hverri íbúð gegn vægu rekstrargjaldi.
Eignin er frábærlega staðsett, útivistargildi svæðisins er mikið og gott aðgengi er að strandlengjunni og Laugardal. Hallgerðargata tengist gömlum og rótgrónum hverfum á Teigunum og Lækjunum og þaðan er stutt í alla verslun og þjónustu auk nálægðar við Laugardalslaug, Grasagarðinn o.fl.
Hin heimsþekkta arkitektastofa Schmidt/Hammer/Larssen hafði umsjón með allri hönnun hússins og hefur hvergi verið til sparað í þeim efnum. Eignin er byggð úr afar vönduðum byggingarefnum og eru m.a. allir gluggar úr áli og klæðning hússins úr lituðu áli og sementstrefjaplötum. Hljóðvist er verulega aukin í eigninni og er gengið mun lengra í þeim efnum en alla jafna tíðkast í íslenskum byggingum, m.a. með því að hafa loftræstikerfi í öllum rýmum íbúðanna og með aukinni hljóðeinangrun utan frá og á milli rýma innan byggingarinnar. Stærstur hluti íbúðanna nýtur óhindraðs útsýnis út á Sundin, að Esjunni, Akrafjalli og víðar. Margar íbúðanna eru með tvennum svölum og eða þakgarði.
Íbúðirnar skilast fullbúnar, án gólefna utan votrýma er verða flísalögð. Gólfhiti verður í öllum íbúðum auk handklæðaofna í baðherbergjum. Mögulegt er að velja á milli fjögurra tegunda af innréttingum, hvíttaðrar hnotu, dökk grárra sprautulakkaðra, hvítra sprautulakkaðra eða eikarskápa klædda með brassi, en síðasta útfærslan kemur gegn viðbótarkostnaði. Hús að utan, lóð og sameign skilast fullfrágengin. Afhending íbúða verður í janúar 2020.