Klettás Garðabær
57.900.000 kr
Klettás Garðabær
-
Verð:57.900.000 kr
-
Tegund:Raðhús
-
Stærð:180
-
Herbergi:6
-
Stofur:3
-
Svefnherbergi:3
-
Baðherbergi:2
-
Inngangur:Sér
-
Byggingaár:2003
-
Lyfta:Nei
-
Fasteignamat:43.800.000
-
Brunabótamat:43.460.000
-
Áhvílandi:24.563.561
-
Raðnúmer:233392
Lýsing
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir mjög vandað og vel skipulagt 180,0 fermetra raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum 22,2 fermetra bílskúr á fallegum og skjólgóðum útsýnisstað í Ásahverfinu í Garðabæ. Á teikningum eru 5 svefnherbergi í húsinu en í dag eru 3 svefnherbergi í húsinu og stofurými á efri hæð stórt og opið.Mjög fallegar og vandaðar hvítar sprautulakkaðar innréttingar og fataskápar eru í húsinu. Allar innihurðir eru úr birki og gólfefni eru úr hlyni. Aukin lofthæð á efri hæð hússins og innfelld lýsing í loftum. Stór verönd með skjólveggjum. Hiti í innkeyrslu og stétt. Hiti er í gólfum í forstofu, holi, 1 herbergi, baðherbergjum, eldhúsi og bílskúr.
Lýsing neðri hæðar:
Forstofa: flísalögð og með fataskápum.
Hol: flísalagt.
Tvö rúmgóð barnaherbergi: parketlögð og með fataskápum. Útgangur á verönd úr öðru.
Hjónaherbergi: rúmgott, parketlagt og með fataskápum.
Baðherbergi: með glugga, flísalagt í gólf og mosaik- og flísalagt í veggi. Góðar innréttingar og mosaiklagður sturtuklefi.
Lýsing efri hæðar: fallegur steyptur parketlagður stigi á milli hæða og handrið úr burstuðu stáli og viði.
Stórar stofur: parketlagðar og með útgangi á rúmgóðar svalir til suðurs. Fallegt útsýni er úr stofum og af svölum til sjávar, að Reykjanesi, Snæfellsjökli og víðar.
Eldhús: opið við stofu, granít á gólfi og fallegar og vandaðar hvítar sprautulakkaðar innréttingar með graníti á borðum og áfastri borðaðstöðu. Innfelld uppþvottavél.
Sjónvarpsstofa: opin við stofu og parketlögð.
Vinnuherbergi: opið við stofu, parketlagt.
Bílskúr er með rafmagni, hita og rennandi vatni. Epoxy á gólfum.
