Breiðavík Reykjavík (Grafarvogur)

75.000.000 kr

Breiðavík Reykjavík (Grafarvogur)

  • Verð:
    75.000.000 kr
  • Tegund:
    Einbýli
  • Stærð:
    238
  • Herbergi:
    5
  • Stofur:
    2
  • Svefnherbergi:
    3
  • Baðherbergi:
    2
  • Inngangur:
    Sér
  • Byggingaár:
    2003
  • Lyfta:
    Nei
  • Fasteignamat:
    50.850.000
  • Brunabótamat:
    0
  • Áhvílandi:
    29.150.379
  • Raðnúmer:
    233133

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir glæsilegt 238,9 fermetra einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 37,8 fermetra bílskúr á frábærum útsýnisstað við opið svæði.

Húsið er afar vandað í alla staði.  Aukin lofthæð er í öllu húsinu, allt að 3,5 metrar. Allar innréttingar og innihurðir eru úr hnotu og gólfefni eru flísar og olíuborið massívt eikarparket.  Innfelld halogenlýsing í loftum og næturlýsing víða í veggjum.  Stórar og fallegar rennihurðir með sandblásnum glerjum í eru úr forstofu í hol og úr holi í stofur og í eldhús.  Stórar verandir með skjólveggjum bæði norðan- og sunnanmegin við húsið.

Lýsing eignar:
Forstofa: flísalögð og með góðum fataskápum.
Hol / sjónvarpsstofa: flísa- og parketlagt og með fallegum arni.
Gestasalerni: við hol, flísalagt í gólf og veggi og með vönduðum tækjum.
Samliggjandi rúmgóðar stofur: parketlagðar og með mjög fallegu útsýni til sjávar, að Esju og víðar.  Úr stofum er útgangur á stóra verönd með skjólveggjum og heitum potti.
Eldhús: stórt, flísalagt og með mjög vönduðum og miklum innréttingum úr hnotu með graníti á borðum.  Stór eyja með graníti á borði, áfastri borðaðstöðu, helluborði og háfi yfir.  Mjög vönduð tæki í eldhúsi.
Þvottaherbergi: innaf eldhúsi, flísalagt og með innréttingum með vaski.
Geymsla: innaf þvottaherbergi, flísalögð og með skápum. Útgangur á baklóð og innangengt í bílskúr.
Svefngangur: parketlagður.
Hjónaherbergi: stórt, parketlagt og með góðum fataskápum. Útgangur á verönd með potti.
Baðherbergi: stórt og með glugga. Flísalagt í gólf og veggi, góðar innréttingar og stór mosaiklagður sturtuklefi og úr hertu gleri.  Vönduð tæki.
Barnaherbergi: rúmgott, parketlagt.
Barnaherbergi: parketlagt.

Bílskúr er með epoxy á gólfi og skápum á heilum vegg.  Hiti, rafmagn og rennandi vatn.

Húsið að utan er í góðu ásigkomulagi og lóðin er glæsileg, teiknuð af Stanislah Bohic, með tveimur veröndum með skjólveggjum.  Heitur pottur á verönd til NA.  Hiti í innkeyrslu og stéttum.

Seljendur vilja athuga með skipti á minni eign á höfuðborgarsvæðinu.  Til greina kemur að skipta á rað- eða parhúsi á einni hæð eða penthouseíbúð með útsýni og stæði í bílageymslu.

Keyrir á WebEd frá Hugsandi Mönnum
Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd