Kirkjusandur Reykjavík (Austurbær)
72.900.000 kr
Kirkjusandur Reykjavík (Austurbær)
-
Verð:72.900.000 kr
-
Tegund:Fjölbýli
-
Stærð:208
-
Herbergi:5
-
Stofur:3
-
Svefnherbergi:2
-
Baðherbergi:2
-
Inngangur:Sameiginlegur
-
Byggingaár:1996
-
Lyfta:Já
-
Fasteignamat:43.850.000
-
Brunabótamat:43.830.000
-
Áhvílandi:0
-
Raðnúmer:232538
Lýsing
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir glæsilega 174,3 fermetra lúxusíbúð á efstu hæð "penthouseíbúð" auk 32,6 fermetra sér geymslu í kjallara og sér stæðis í bílageymslu á þessum eftirsótta útsýnisstað við sjóinn.Íbúðin er öll hin vandaðasta með tvennum svölum og óviðjafnanlegu útsýni yfir borgina, út á sjóinn, til fjalla og víðar.
Íbúðin er innréttuð á afar vandaðan og smekklegan máta með miklum sérsmíðuðum innréttingum. Hús að utan og sameign eru í góðu ástandi.
Rafmagnsopnarar eru á hurðum í sameign og aðgengi fyrir fatlaða mjög gott.
Lýsing eignar: Komið er úr lyftu á 6. hæð í stórt sameiginlegt rými með ofanbirtu þar sem er setustofa fyrir þær tvær íbúðir sem eru á efstu hæð hússins.
Íbúð:
Forstofa / hol: parketlagt og með fataskápum.
Gestasalerni: flísalagt í gólf og veggi.
Sjónvarpshol: parketlagt og rúmgott.
Barnaherbergi: parketlagt og með fataskápum.
Hjónaherbergi: rúmgott, parketlagt og með fataskápum á heilum vegg.
Baðherbergi: flísalagt í gólf og veggi, bæði baðkar og flísalagður sturtuklefi auk innréttingar.
Geymsla: parketlögð og með hillum.
Skáli / setustofa: parketlögð og með útgangi á flísalagðar svalir til suðurs og vesturs. Frábært útsýni yfir borgina, til sjávar og að Bláfjöllum.
Eldhús: parketlagt og með vönduðum innréttingum úr kirsuberjaviði með flísum á milli skápa. Innfelld uppþvottavél í innréttingu og áföst borðaðstaða.
Samliggjandi stórar stofur: parketlagðar og bjartar með útgangi á flísalagðar svalir til suðurs og vesturs. Fallegur arinn er í stofum.
Á hæðinni er sameiginlegt þvottaherbergi með einni annarri íbúð, flísalagt og með glugga.
Í kjallara er 32,6 fermetra sér geymsla með hillum auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Sér stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Þvottastæði er í bílageymslu.
Á jarðhæð hússins er sameiginlegt fundarherbergi og aðgengi að líkamsræktaraðstöðu í húsinu nr. 3, innangengt. Púttvöllur er á lóð hússins.
