Bjarkarás Garðabær
47.900.000 kr
Bjarkarás Garðabær
-
Verð:47.900.000 kr
-
Tegund:Hæð
-
Stærð:145
-
Herbergi:3
-
Stofur:1
-
Svefnherbergi:2
-
Baðherbergi:1
-
Inngangur:Sér
-
Byggingaár:2006
-
Lyfta:Nei
-
Fasteignamat:32.350.000
-
Brunabótamat:36.640.000
-
Áhvílandi:0
-
Raðnúmer:232070
Lýsing
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir mjög fallega og vandaða 145,0 fermetra íbúð á efri hæð með sér inngangi í nýlegu og vönduðu litlu fjölbýli á eftirsóttum stað í Garðabæ. Sér stæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.Sér inngangur og stórar svalir til suðvesturs með fallegu útsýni.
Lýsing eignar:
Forstofa: flísalögð og með fataskápum.
Hol: parketlagt.
Svefngangur: parketlagður.
Þvottaherbergi: flísalagt og með vaski.
Geymsla: innaf þvottaherbergi með glugga.
Barnaherbergi: parketlagt og með fataskápum.
Hjónaherbergi: stórt, parketlagt og með fataskápum.
Baðherbergi: flísalagt í gólf og veggi, baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting og handklæðaofn.
Stofa: mjög stór, björt og parketlögð með útgangi á rúmgóðar svalir til suðvesturs. Fallegt útsýni úr stofu og af svölum til sjávar.
Eldhús: opið við stofu, parketlagt og með fallegum eikarinnréttingum og tækjum úr burstuðu stáli. Stór borðaðstaða í eldhúsi. Tengi fyrir uppþvottavél.
Sér stæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. Hús að utan er í góðu ásigkomulagi og lóð er falleg með hitalögnum í stéttum og tröppum.
